Tunglkoma hefur verið staðfest í Jerúsalem kl. 16:48 að staðartíma.
Þar með hefur 9. mánuður biblíulega tímatalsins runnið upp.
Fræðslustundir
Torah.is
auglýsir fræðslustundir sem verða nú haldnar í Friðrikskapellu
fyrsta laugardag hvers mánaðar í samvinnu við bænasamfélag í Reykjavík
sem Jeannot A. Tsirenge fer fyrir.
Fyrsta fræðslustundin verður í höndum Sigrúnar Einarsdóttur
og ber yfirskriftina "Grunntakturinn í tónverki Jahve."
Sú fræðsla fjallar um nokkur undirstöðuatriði sem hafa
gegnumgangandi gildi í samfélagi okkar við Guð og menn.
Þessi fyrsta fræðslustund í Friðrikskapellu verður haldin
laugardaginn 5. nóvember, hefst klukkan 14:00,
er ókeypis og öllum opin.
Tunglkoma 8. mánaðar hefur verið staðfest í Jerúsalem
(28.10.2011). Rosh Chodesh Sameach!
Orðið torah er dregið af orðinu „yarah“ sem var hugtak um bogfimi
á
fornhebresku og þýddi að skjóta ör beint í mark. Það þýddi líka það
að
kenna eða veita leiðbeiningar.
Í biblíulegum skilningi vísar
Torah
því í leiðbeiningar
frá kærleiksríkum Elóhím um það hvernig
við
lifum lífi sem hittir í mark.
Fyrstu fimm bækur Biblíunnar sem
stundum eru kallaðar Mósebækurnar, eru líka kallaðarTorah, sem
er mjög viðeigandi, þar sem þær innihalda upphaflegar
leiðbeiningar Elóhíms til lýðs síns varðandi líf í samhljómi við vilja
hans.