Hér eru tenglar inn á starfandi félög Ísraelsvina.
 Ef þú vilt vera með, hafðu þá endilega samband
við forsvarsmenn félaganna.
 

                                              


Netfang: zion@zion.is

Vinir Ísraels eru sem “varðmenn við múra Jerúsalem sem aldrei þegja, hvorki um daga né nætur”... uns Hann reisir  Jerúsalem og gjörir hana vegsamlega á jörðinni.

Félagar eru einstaklingar sem trúa á boðskap Biblíunnar fyrirheit hennar fyrir alla tíma.

Félagar líta á stofnun Ísraelsríkis 1948 sem hluta af uppfyllingu fyrirheita sem gefin hafa verið í Biblíunni.

Félagar trúa á mátt bænarinnar og hvetja presta og  forstöðumenn hinna ýmsu samfélaga að minnast þessa Lands og þjóðar með blessunum sínum og fyrirbænum.

Félagið styrkir á allan hátt þá sem vilja hjálpa gyðingum að verja land sitt og sjálfstæði.  Einnig að græða þau sár sem landið og þjóðin hefur hlotið, og mun hljóta !

Félagar standa í gegn kynþáttamisrétti hvar sem er, gegn ógnum og hryðjuverkum hvaðan sem þau koma.

Félagar munu stuðla að og hafa áhrif á, að sem flestir geti heimsótt Landið helga og tekið þátt í hátíðum sem tengdar eru Biblíunni sbr. páskar, hvítasunnuhátíð og laufskálahátíð.

Félagið mun aðstoða ungt fólk sem vill vinna á samyrkjubúum, til lengri eða skemmri tíma.

Félagið styrkir skólastarf meðal palestínu/araba og gyðinga.

 

Að vera vinur Ísraels, þýðir ekki að vera óvinur annarra...
 

 

 

Félagið Shalom Ísrael

Tilgangur félagsins er að miðla fræðslu um Ísrael
og menningu íbúa landsins.

Reglulega eru haldnir fundir, fræðslustundir
og aðrar samverustundir.

Netfang: shalomisrael@hive.is
 


Island-Israel

V
efurinn Ísland-Israel.is er hugsaður sem sanngjarnt mótsvar gegn hinum mikla og tilefnislausa áróðri sem Ísraelsþjóðin hefur þurft að sitja undir.

Þar er ekki rekinn áróður gegn neinu ríki eða trúarbrögðum. Einungis vilja aðstandendur síðunnar benda á að það eru alltaf að minnsta kosti tvær hliðar á öllum málum.

Stuðningur við Ísraels ríki hefur farið minnkandi á síðustu árum. Er það að stórum hluta til komið vegna mikils áróðurs nágranna ríkja Ísraels, áróður sem hefur fenginn mikinn hljómgrunn í hinum vestræna heimi og er þar ísland engin undantekning, en áróðurs sem sjaldnast á við rök að styðja engu að síður.

Með þessum vef verður reynt að sýna óbrenglaða og rétta mynd af Ísrael
og þeirri þjóð sem byggir það land.

Öllum er frjálst að birta greinar á síðunni ef þeim liggur eitthvað á hjarta eða búa yfir upplýsingum sem gætu varpað betra ljósi á þann harmleik sem á sér stað við í hinu unga ríki Ísraels og allir vilja sjá fyrir endann á, ekki síst hinir friðelskandi þegnar Ísraels.

Nánari upplýsingar á síðunni sjálfri.
Island-Israel.is


 

 

Copyright - www.torah.is

torah@internet.is

 

     
 


Sigrún Einarsdóttir & Ragnar B. Björnsson © 2008
www.torah.is / torah@internet.is